Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Segja má að í þessum viðbrögðum iðnn., sem formaður nefndarinnar hefur gert grein fyrir, votti fyrir meðvitund um að iðnn. hafi verið lítilsvirt og niðurlægð. Það vottar fyrir meðvitund um að það sé ekki gott að nefndin hafi setið yfir því að vinna stórmál og fengið til sín gesti sem hafi haldið frá nefndinni mikilsverðum upplýsingum um stöðu málsins. Það eru a.m.k. óhrekjanlegar staðreyndir sem enginn getur mótmælt. Það hefur verið margítrekað og upplýst opinberlega, bæði í viðtölum við fjölmiðla og á fundi austur á Reyðarfirði í fyrrakvöld, að háttsettir menn í Norsk Hydro hafi gefið æðstu embættismönnum Íslendinga sem um þessi mál fjalla upplýsingar um það í lok febrúar að þessi staða væri komin upp. Jostein Flo, hygg ég að hann heiti, upplýsingastjóri eða háttsettur maður í Hydro Aluminium, var þar nefndur til sögunnar og ekki ómerkari maður en Þórður Friðjónsson tók við upplýsingunum og gerði iðnrh. þegar viðvart.
Síðan koma þessir herramenn hver á fætur öðrum, ráðuneytisstjórinn í iðnrn., Þórður Friðjónsson, Geir A. Gunnlaugsson, fyrir þingnefndir og anda ekki út úr sér að neinna breytinga sé að vænta í málinu. Þetta skilur hvert einasta mannsbarn, herra forseti. Aumlegir tilburðir til að reyna að gera eitthvað annað úr þessu máli en við blasir gera bara vondan málstað verri. Það er einna ömurlegast, herra forseti, að horfa upp á metnaðarleysi þingmanna hér fyrir hönd stofnunarinnar og vinnustaðar síns að taka ekki upp þykkjuna þegar svona er komið fram. Ja, lítil eru geð guma.