Kosningar til sveitarstjórna

Föstudaginn 05. apríl 2002, kl. 10:34:21 (6972)

2002-04-05 10:34:21# 127. lþ. 111.1 fundur 550. mál: #A kosningar til sveitarstjórna# (erlendir ríkisborgarar o.fl.) frv. 27/2002, Frsm. meiri hluta ArnbS
[prenta uppsett í dálka] 111. fundur, 127. lþ.

[10:34]

Frsm. meiri hluta félmn. (Arnbjörg Sveinsdóttir):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 5/1998, um kosningar til sveitarstjórna. Þetta er nál. frá meiri hluta félmn.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Guðjón Bragason og Maríu Sæmundsdóttur frá félagsmálaráðuneyti, Gunnar Eydal frá Reykjavíkurborg, Ástu Þorleifsdóttur frá Einari J. Skúlasyni, Skúla Guðmundsson frá Hagstofu Íslands, Þórð Skúlason frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Hjalta Zóphóníasson frá dómsmálaráðuneyti.

Með frumvarpinu er lagt til að allir erlendir ríkisborgarar, aðrir en danskir, sænskir, norskir og finnskir ríkisborgarar, sem átt hafi lögheimili hér á landi í fimm ár samfellt fyrir kjördag, njóti framvegis kosningarréttar og kjörgengis við sveitarstjórnarkosningar. Þá er lagt til að ekki verði lengur gerð krafa um meðmælendur með framboðslistum í sveitarfélögum með 100 íbúa eða færri. Aðrar breytingar með frumvarpinu miða að því að tryggja að ákvæði laga um kosningar til sveitarstjórna verði í samræmi við ákvæði laga um kosningar til Alþingis.

Leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Undir nál. rita Arnbjörg Sveinsdóttir formaður, Magnús Stefánsson, Jónína Bjartmarz, Pétur H. Blöndal og Drífa Hjartardóttir.