Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég vil byrja á að fagna því að hv. þm. er sammála okkur í minni hlutanum um réttindi Norðurlandabúa og geri ráð fyrir að hann muni styðja þá brtt. sem liggur hér fyrir og ég trúi að þeir verði örugglega fleiri.
Varðandi rafrænu kosningarnar er ekki rétt að menn hafi ekki talið unnt að koma á rafrænum kosningum. Þeir töldu það ekki unnt eins og lögin eru í dag og þess vegna hefði auðvitað þurft að koma með brtt. til þess að það væri unnt. Því erum við komin með brtt. um að þeir sem hafi hug á því að reyna rafrænar kosningar geti gert það ef þeim hugnast það, þ.e. í næstu kosningum með því að setja inn bráðabirgðaákvæði um rafrænar kosningar.
Umræðan um að handtalningin magni upp spennu um úrslit kosninganna þá er það auðvitað alveg rétt, en með rafrænum kosningum er líka hægt að ákveða hvenær upplýsingar eru birtar. Menn geta stjórnað því nokkuð sjálfir hvenær upplýsingar um niðurstöðu kosninga eru birtar þannig að ef menn vilja halda upp á það að kvöldi, þá er hægt að ákveða að kosningaúrslit verði birt um miðnætti eða hvenær sem menn ákveða slíkt.
Ég gat ekki heyrt annað, herra forseti, á hv. þm. en að hugur hans stæði til þess að styðja báðar brtt. sem koma fram frá okkur í minni hlutanum, annars vegar þess sem snýr að Norðurlandabúunum og hins vegar því sem snýr að rafrænni kosningu því að hann taldi að það væri framtíðin og ég er alveg sammála hv. þm. Þess vegna tel ég nauðsynlegt að bráðabirgðaákvæði sé um slíka heimild.
Varðandi kostnaðinn þá kostar það auðvitað að koma á algerlega rafrænni kosningu en að reyna þetta á nokkrum stöðum ætti ekki að vera svo kostnaðarsamt.