Halldór Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Ég átta mig ekki alveg á því í hverju andsvar hv. þm. var fólgið nema ef vera kynni að hann væri að gera athugasemdir við að ég skyldi hafa bent á það nána samband og þau nánu kynni sem við höfum haft af Skotum og Englendingum í gegnum aldirnar. Ég vil minna hv. þingmann á að t.d. þegar verslun var gefin frjáls á 19. öld voru Skotar hinir fyrstu sem hingað komu til að nýta sér hið nýja verslunarfrelsi eins og við sjáum af ýmsum nöfnum hér á landi, t.d. á verslunum eins og Edinborg eða Glasgow. Eins má auðvitað rifja það upp að það var Coghill, sá ágæti sauðakaupmaður, sem fyrstur byrjaði hér að greiða peninga fyrir sauði sem m.a. olli því að Húnvetningar höfðu efni á að senda syni sína utan að læra til læknis.