Þuríður Backman:
Herra forseti. Ég vil geta þess í örstuttu máli að ég er samþykk þessari breytingu í sjálfu sér. Ég held að hún sé til bóta, þ.e. að geta haft vægari sveiflur og geta stjórnað verð- og magntolli á mildari hátt en áður var. En það eru afleiðingar af þessum breytingum. Það að fella niður tolla á grænmeti getur haft þær afleiðingar að rekstrarumhverfi garðyrkjubænda verði erfiðara. Við því vil ég vara og í raun er gert ráð fyrir því að ekki muni allir ylræktarbændur verða ofan á í samkeppni við innflutt grænmeti og því er gert ráð fyrir því að þeim verði hjálpað til að úrelda gróðurhús sín. Eins má geta þess að í tengslum við svona breytingar þarf að herða eftirlit með smásöluálagningunni og dreifingaraðilum þannig að þessar tilfærslur, niðurfelling tolla og beingreiðslur til bænda, skili sér til neytenda. Eftirlit með smásöluversluninni þarf því að verða meira.