Tollalög

Mánudaginn 08. apríl 2002, kl. 11:56:23 (7078)

2002-04-08 11:56:23# 127. lþ. 114.21 fundur 576. mál: #A tollalög# (tollar á grænmeti) frv. 46/2002, Frsm. DrH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 114. fundur, 127. lþ.

[11:56]

Frsm. landbn. (Drífa Hjartardóttir) (andsvar):

Herra forseti. Svo vill til að það frv. sem hv. þm. Jón Bjarnason nefndi áðan er til meðferðar í landbn. Það kemur í sjálfu sér ekki þessu máli beint við. Það er frv. til laga um breytingu á lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Þau frv. eru bara til meðferðar í hv. landbn. og að sjálfsögðu verða allir þeir aðilar kallaðir til sem þurfa að koma að málinu. En ég legg áherslu á að þetta frv. verði samþykkt án frekari tafa.