Menntamálaráðherra (Tómas Ingi Olrich) (andsvar):
Herra forseti. Reiknilíkanið er ekki og getur ekki verið smíðað utan um einn skóla. Þannig eru líkönin ekki. Það er ekki hægt við lagabreytingu eins og þessa að sérsmíða reiknilíkan utan um Tækniháskóla Íslands. Tækniháskóli Íslands er í fyrsta lagi með starfsemi sem er sambærileg starfsemi annarra skóla. Líkönin væru í raun tilgangslaus ef þau væru sérsmíðuð utan um skóla. Reiknilíkanið verður endurskoðað. En það verður ekki endurskoðað í tilefni af lagasetningu um einn skóla.
Af því að mér láðist að svara hv. þm. um ákvæði um það hver væri fjárhagsleg ábyrgð í þessu --- mér láðist að svara því áðan --- þá vil ég líka taka það fram að þar þarf hann að lesa saman almenn lög um háskóla, sérstaklega 19. gr. Þá kemur þetta í ljós.