Forseti (Halldór Blöndal):
Ég vil benda hv. þm., sem er lögfróður, á að 90. gr. þingskapa fjallar um afbrigði frá þingsköpum. Í þessari atkvæðagreiðslu er ekki verið að leita afbrigða frá þingsköpum heldur er verið að leita eftir heimild til að taka mál á dagskrá eins og mælt er fyrir um í 36. gr.