Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Hér er um að ræða mál sem hæstv. samgrh. hefur þegar mælt fyrir, frv. til laga sem varðar þetta sama mál. Það byggist á því að Ísland gerist aðili að þeirri samþykkt sem hér um ræðir, og þessi þáltill. er nauðsynleg í samhengi við það mál.
Ég legg til, herra forseti, að því verði vísað að lokinni þessari umræðu til hv. utanrmn.