Halldór Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Ég tel það gagnlega hugmynd að heimamenn eigi að stjórna þjóðgarði og sannfærðist um það á meðan hv. þm. Össur Skarphéðinsson var umhvrh. og fór með þessi mál.
Nú er það svo að þegar hv. þm. gerir grein fyrir hugmyndum sínum um þjóðgarð --- hann var að tala áðan um hugmyndir sínar um að þessum Vatnajökulsþjóðgarði yrði stjórnað frá Kirkjubæjarklaustri eða Höfn --- talaði hann að vísu um að leggja Síðumannaafrétt undir þjóðgarðinn með Lakagígum og því svæði. Ég vil líka skýra betur þær hugmyndir sem hv. þm. hefur um að leggja niður landbrn. Eins og stendur í tillögu hans þá talar hann sérstaklega um að beitarnýting verði sem minnst skert og leggur mikla áherslu á það í plaggi sínu. Hann talar raunar á öðrum stað sérstaklega um að nýsköpun í sveitabúskap og þar fram eftir götunum, að ræktun og uppgræðsla miðist við þarfir búrekstrar.
Nú skilst mér að ræktun og uppgræðslu eigi að koma fyrir í umhvrn. þannig að eiginlega vantaði það eitt í ræðu hans áðan að hann segði að leggja ætti landbrn. undir umhvrn. Þá væri þetta allt saman fullkomnað. Þá sæi maður fyrir sér hvar hv. þm. stýrði miklum rekstri upp á Mývatnsöræfum, um Útbruna niður Bárðardal, í krafti sinna miklu umhverfishugsjóna. (SJS: Og kæmi við í Svartárkoti.) Og kæmi við í Svartárkoti.