Pétur H. Blöndal:
Herra forseti. Við greiðum atkvæði um gífurlega ríkisábyrgð fyrir eitt fyrirtæki. Burt séð frá því að þetta frv. er algert brot á stefnu flokks míns sem hefur viljað almennar aðgerðir í efnahagsmálum en ekki sértækar, hvað þá eintækar, er hér um svo mikla áhættu að ræða fyrir ríkissjóð, 70 þús. kr. á hvern einasta íbúa landsins, litlu börnin talin með, að ég get engan veginn staðið að þessu. Ég greiði atkvæði gegn því að það fari til 2. umr. (GE: Þú verður að halda þeirri skoðun í sætið.)