Kristinn H. Gunnarsson:
Herra forseti. Ég held að það fari ekki á milli mála að Alþingi hefði getað vandað sig betur við frágang á þessu máli og það á auðvitað við um alla sem þátt tóku í því, bæði mig, forsrh. og forseta. Úr því sem komið er er langbest að reyna að skýra málið og ég tel sjálfsagt að verða við ósk forseta um að nefndin komi saman til að taka málið fyrir. Ég mun beita mér fyrir því að fundur verði í efh.- og viðskn. í kvöldmatarhléi til að taka þetta mál fyrir.