Þingsályktun um verkaskiptingu hins opinbera og einkaaðila

Fimmtudaginn 18. apríl 2002, kl. 10:42:04 (7720)

2002-04-18 10:42:04# 127. lþ. 122.91 fundur 517#B þingsályktun um verkaskiptingu hins opinbera og einkaaðila# (aths. um störf þingsins), forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 122. fundur, 127. lþ.

[10:42]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Herra forseti. Ég þakka þessar umræður út af fyrir sig. Ég vil aðeins nefna það af því að núna eru fleiri í salnum en voru í gær að það er ekki verið að reyna að koma höggi á einn eða neinn og ég tók það sérstaklega fram að rannsókn hefði sýnt að ég hefði sjálfur greitt atkvæði með tillögunni í þessu formi. Ég ber því alveg sömu sök og aðrir í salnum.