Forseti (Halldór Blöndal):
Borist hefur svohljóðandi bréf:
,,Þar sem Kristján L. Möller, 3. þm. Norðurl. v., er erlendis í opinberum erindum og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að varamaður hans, Anna Kristín Gunnarsdóttir, skipulagsstjóri á Sauðárkróki, taki sæti hans á Alþingi á meðan.
Virðingarfyllst,
Bryndís Hlöðversdóttir,
formaður þingflokks Samfylkingarinnar.``
Kjörbréf Önnu Kristínar Gunnarsdóttur hefur verið samþykkt. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.