Kolbrún Halldórsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka fyrir þessar upplýsingar, en langar að vita hvort eitthvað standi fyrir dyrum hjá fyrirtækinu að fara út í atvinnurekstur af öðru tagi, og ég held að eðlilegt væri að við fengjum að vita á Alþingi hvað það er, eða þá hvort fyrirtækið sé búið að fjárfesta í öðrum atvinnurekstri og þegar það hafi verið afstaðið hafi komið í ljós að lagaheimildin var ekki til staðar þannig að það sé verið að samþykkja hana eftir á. Ég tel ekki að ráðherrann sé alveg búin að skýra þetta til fullnustu fyrir þingheimi.