Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Nú kann vel að vera rétt að stjórnsýslulög eða önnur lög, um persónuvernd eða annað, setji dómsmrh. einhverjar skorður. Ég ætla ekki að fullyrða um það. Hitt veit ég að menn hafa oft farið út í lagabreytingar á liðnum árum án þess að hugsa dæmið alveg til enda. Ég fullyrði ekki um það í þessu efni. En ég bendi á Skýrsluvélar ríkisins sem önnuðust launabókhald og það leið ekki langur tími þar til upp risu efasemdir um að eðlilegt væri að fara með slíkar upplýsingar út á markað.
En hvað sem líður nefndum sem kveðið er á um í lögum stendur eftir sem áður eftirfarandi, með leyfi forseta, í 7. gr. frv.:
,,Umferðarstofnun er heimilt að fela öðrum framkvæmd verkefna sem henni tilheyra, samkvæmt reglum sem dómsmálaráðherra setur.
Dómsmálaráðherra setur nánari reglur um starf og hlutverk Umferðarstofnunar og stað festir skipurit hennar og skiptingu í starfsdeildir.``
Þarna er sett í hendur dómsmrh. á afdráttarlausan hátt vald til að skipa þessum verkefnum eins og honum best líkar.
Hitt kann að vera rétt, ég ætla ekkert að fullyrða um það, að honum séu settar skorður í öðrum lögum. En ég vildi vekja athygli á þessu og hef reyndar gert við fyrri umræðu.