Breyting á bókun 26 við EES-samninginn (störf Eftirlitsstofnunar EFTA)

Laugardaginn 20. apríl 2002, kl. 10:42:40 (7974)

2002-04-20 10:42:40# 127. lþ. 124.23 fundur 622. mál: #A breyting á bókun 26 við EES-samninginn (störf Eftirlitsstofnunar EFTA)# þál. 15/127, Frsm. SAÞ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 124. fundur, 127. lþ.

[10:42]

Frsm. utanrmn. (Sigríður A. Þórðardóttir) (andsvar):

Herra forseti. Ég tel að ekkert sé því til fyrirstöðu að við klárum þetta mál, þessa þingsályktun og tel að það þurfi ekki að skoða í sérstöku samhengi við frv. sem liggur fyrir þinginu um ríkisábyrgð og við ætlum að taka til umfjöllunar í næstu viku.