Frsm. utanrmn. (Sigríður A. Þórðardóttir) (andsvar):
Herra forseti. Þessi mál voru ekki skoðuð í samhengi í utanrmn. við umfjöllun málsins. En ég treysti því fullkomlega að ríkisstjórnin hafi farið ofan í kjölinn á þessum málum. Síðan verður frv. um ríkisábyrgðina til umfjöllunar hér í þinginu í næstu viku og fer til þingnefndar sem að sjálfsögðu mun fara vandlega ofan í það mál.