Frsm. utanrmn. (Sigríður A. Þórðardóttir):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. frá utanrmn. um till. til þál. um alþjóðlega ráðstefnu um sjálfbæra þróun og nýtingu lífríkis á Vestur-Norðurlöndum.
Með tillögunni er farið fram á að ríkisstjórn Íslands, í samvinnu við landstjórnir Færeyja og Grænlands, haldi alþjóðlega ráðstefnu um sjálfbæra þróun og nýtingu lífríkis á Vestur-Norðurlöndum en tillagan byggist á tilmælum nr. 2/2001 sem samþykkt voru á ársfundi Vestnorræna ráðsins á Grænlandi 2001.
Nefndin leggur einróma til að tillagan verði samþykkt.