Framhald þingfundar

Laugardaginn 20. apríl 2002, kl. 15:02:11 (8043)

2002-04-20 15:02:11# 127. lþ. 124.93 fundur 532#B framhald þingfundar# (um fundarstjórn), Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 124. fundur, 127. lþ.

[15:02]

Forseti (Halldór Blöndal):

Það vekur athygli mína að svo virðist sem hv. þm. hafi ekki athugasemdir við það að haldinn sé kvöldfundur í nefndum Alþingis á laugardagskvöldi sem er nýmæli. En ég tel á hinn bóginn að tímanum sé betur varið með því að umræður fari fram hér í þingsalnum og hef af þeim sökum sent skýr skilaboð um að það verði ekki nefndafundir í dag eða í kvöld og þarf ekki að fjölyrða um það. En við því er að búast að kvöldfundur verði og jafnvel fundur fram á nótt.