Össur Skarphéðinsson:
Herra forseti. Það er laugardagur og það er nokkuð liðið á kvöld. Ég vildi gjarnan inna hæstv. forseta eftir því hvenær hann hyggst ljúka fundi. Ég er búinn að vera hér á hinu háa Alþingi kjörinn fulltrúi síðan 1991 og á þeim tíma hefur það aldrei gerst að fundur hafi verið á laugardegi fram eftir kvöldi og jafnvel inn í aðfaranótt sunnudags eins og mér heyrist á stjórnarliðum að kunni að vera gert á þessu kvöldi utan einu sinni. Þá var það í fullu samkomulagi stjórnar og stjórnarandstöðu. Þá var verið að ljúka þingi og út af fyrir sig ekkert við því að segja þar sem báðir aðilar, minni hluti og meiri hluti á þingi, voru því sammála.
Ég vildi þess vegna, þar sem ekki liggur fyrir neitt samkomulag um það hvernig eigi að haga þessum fundi, inna hæstv. forseta eftir því með hvaða hætti hann hyggst stýra fundi inn í kvöldið og inn í nóttina og spyrja hann líka hvaða nauður rekur til þess að menn fari með þessum hætti í dagskrána. Ég veit að sönnu að það eru mörg mál undir en þetta eru mál sem þarf að ræða í þaula. Nú er það svo að að því er ég veit hefur ekki verið gerð nokkur tilraun til þess að leita samkomulags við stjórnarandstöðuna. Og það er alveg rétt að hæstv. forseti viti af því að ef það á með þessum hætti að beita ofbeldi, knýja menn til þess að vera hér á fundi sem hafa verið á fundum mörg kvöld í röð, þá verður því ákaflega illa tekið.
Ég hef sjálfur verið á fundum á vegum Alþingis mánudag, þriðjudag, miðvikudag, fimmtudag, til kl. 7 í gær og síðan aftur núna. Ég verð að segja það, herra forseti, að það er ákaflega fjölskylduóvinsamlegur forseti sem með þessum hætti stýrir þingi. Ég mótmæli þessu harðlega. Eins og aðrir þingmenn hef ég skyldur að rækja við fleiri en þetta háa Alþingi, þar á meðal mína fjölskyldu. Hæstv. forseti gerir mér ákaflega erfitt um vik að sinna því starfi.
Síðan ég kom til þings hef ég aldrei þurft að rækja þingstörf með þessum hætti, að vera öll kvöld utan eitt fjarri fjölskyldu hér á fundum. Mér finnst það algerlega fráleitt, herra forseti. Ég á erfitt með að sætta mig við þessi vinnubrögð, ég á erfitt með að sætta mig við það að hæstv. forseti geri enga tilraun til þess að ná einhvers konar samkomulagi um niðurstöðu mála. Mér sýnist á þessu að það verði ákaflega erfitt að ná einhvers konar sameiginlegri lendingu um það hvernig á að halda þinghaldi áfram og mér sýnist að með þessum hætti verði menn hér alla næstu viku og þess vegna þar næstu viku og út af fyrir sig er mér alveg sama ef það er stefna forseta að reyna að ná þingi saman aftur í júní til þess að ljúka málum. Mér er alveg sama um það. En við eigum kröfu á því, við sem erum í ...
(Forseti (HBl): Hv. þm. hefur lokið við þann tíma sem ætlaður er til þess að ræða um fundarstjórn forseta samkvæmt þingsköpum.)
Herra forseti. Ég geri þá engar athugasemdir við þann úrskurð hæstv. forseta en vek eftirtekt á því að það er ekki fullt samræmi á milli litar ljóss og tímamælingarinnar.