Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég vil vekja atygli hv. þm. á því að við í meiri hluta efh.- og viðskn. erum í sama liði og fjmrh. og ríkisstjórnin og á vegum ríkisstjórnarinnar og fjmrn. hefur verið unnið mjög mikið í undirbúningi þessa máls. Það hefur verið skoðað, það hefur verið farið yfir trúnaðarupplýsingar frá fyrirtækinu varðandi þau áform sem fyrirtækið hefur og farið yfir upplýsingar sem í rauninni gengur ekki að lagðar séu fram opinberlega þannig að það spilli fyrir starfsemi fyrirtækisins á hlutabréfamarkaði.
Ég hygg hins vegar að fyrir mig sem þingmann hafi ég farið mjög rækilega yfir eðli þessa máls, í hverju áhættan felst, gert mér grein fyrir því að það er hægt að stýra áhættunni í þessu ferli. Það er ekki eitthvert eitt punkt-mat í sambandi við áhættu á þessu máli heldur er áhættustýringin samfellt viðfangsefni og eilífur hluti af rekstri fyrirtækis af þessum toga. Þess vegna er það þannig að það sem hv. þm. nefnir varðandi reglur um áhættumat, þá eiga þær ekki við að þessu leyti til. Það er ekki hægt með einföldum hætti að reikna út einhverjar sérstakar gjaldþrotalíkur enda hefur þetta mál þann tilgang að byggja hér upp þessi störf með þeirri þekkingu sem fólkið sem vinnur við þetta hefur og það að þetta þoli það í rauninni að allt fari á versta veg.