Almennar stjórnmálaumræður (útvarpsumræður)

Miðvikudaginn 24. apríl 2002, kl. 20:00:24 (8221)

2002-04-24 20:00:24# 127. lþ. 129.1 fundur 542#B Almennar stjórnmálaumræður (útvarpsumræður)#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 129. fundur, 127. lþ.

[20:00]

Forseti (Halldór Blöndal):

Umræðurnar fara þannig fram hver þingflokkur fær 22 mínútur til umráða sem skiptast í þrjár umferðir; tíu mínútur í fyrstu umferð og sex mínútur í annarri og síðustu umferð.

Röð flokkanna verður þessi í öllum umferðum: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð, Framsóknarflokkur og Frjálslyndi flokkurinn.

Ræðumenn flokkanna verða sem hér segir: Fyrir Samfylkinguna tala í fyrstu umferð Bryndís Hlöðversdóttir, 9. þm. Reykv., í annarri umferð Guðrún Ögmundsdóttir, 11. þm. Reykv., en í þriðju umferð talar Guðmundur Árni Stefánsson, 6. þm. Reykn.

Fyrir Sjálfstæðisflokk tala í fyrstu umferð Geir H. Haarde fjmrh., í annarri Tómas Ingi Olrich menntmrh. en í þeirri þriðju Sigríður Ingvarsdóttir, 4. þm. Norðurl. v.

Ræðumenn Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs verða í fyrstu umferð Árni Steinar Jóhannsson, 6. þm. Norðurl. e., í annarri umferð Þuríður Backman, 5. þm. Austurl., en Ögmundur Jónasson, 13. þm. Reykv., í þriðju umferð.

Fyrir Framsóknarflokk tala Páll Pétursson félmrh. í fyrstu umferð, í annarri Hjálmar Árnason, 10. þm. Reykn., en í þriðju umferð Valgerður Sverrisdóttir, iðn.- og viðskrh.

Fyrir Frjálslynda flokkinn tala í fyrstu umferð Guðjón A. Kristjánsson, 4. þm. Vestf., en Sverrir Hermannsson, 18. þm. Reykv., í annarri og í þriðju umferð.