Ögmundur Jónasson:
Góðir landsmenn. Umræðan í kvöld hófst í Brussel um Evrópusambandið. Ég ætla að halda mig á Íslandi og ég ætla að horfa til sólarinnar, hún fer nú hækkandi á lofti og það er góð tilfinning. Það er líka góð tilfinning þegar þjóðin aflar vel, eða vita menn að á fyrstu þremur mánuðum þessa árs öfluðum við meira en dæmi eru um í sögunni? Í fyrra slógu íslenskir sjómenn einnig met. Og þegar saman fara góð aflabrögð og tiltölulega hagstætt verð á mörkuðum eins og verið hefur um skeið er ástæða til að fyllast bjartsýni.
Á ýmsum öðrum atvinnusviðum horfir einnig vel og það sem er uppörvandi er að sjá hve víða fólk sér möguleika og býr yfir sköpunarkrafti, hvort sem er í tæknigreinum, matvælaiðnaði, lyfjaþróun, lyfjaframleiðslu og ferðaþjónustu og þannig mætti áfram telja. En skilyrði þurfa að vera til staðar til þess að framtak manna fái blómstrað. Og í því samhengi þarf að spyrja um hlutverk ríkisstjórnar og um hlutverk Alþingis.
Um allt land eru menn að segja það sama. Við þurfum tvennt: Í fyrsta lagi þurfum við góða þjónustu, góðar samgöngur, skóla, sjúkrahús, fjarskipti, póstþjónustu og annað sem við gerum kröfu til í nútímanum. Í öðru lagi þurfum við að fá aðgang að lánum á góðum kjörum. Það er ekki verið að fara fram á gjafir og það er ekki verið að fara fram á vaxtalaus lán. Menn vilja einfaldlega aðgang að fjármagni á hagstæðum lánskjörum og eru orðnir langþreyttir á að láta neita sér um alla síka fyrirgreiðslu, sérstaklega þegar þeir búa ekki á góðu veðsetningarsvæði.
Þetta tvennt eru menn að kalla á: Góða velferðarþjónustu og ódýrt fjármagn. Þessu höfum við í Vinstri hreyfingunni -- grænu framboði svarað á skýran og afdráttarlausan hátt því einmitt þetta teljum við vera hlutverk hins opinbera, annars vegar að sjá fyrir góðri samfélagsþjónustu og hins vegar að stuðla að uppbyggingu í atvinnurekstri. Þegar slíkur stuðningur er veittur þarf að sjálfsögðu að gæta jafnræðis og hafa skýrar reglur þar sem m.a. verði tekið mið af byggðasjónarmiðum, af þörf á atvinnuuppbyggingu. Þetta hefur verið okkar stefna.
Það er á þessum forsendum sem við mótmæltum því að ríkisbankarnir yrðu gerðir að hlutafélögum og seldir, og það var einnig á þessum forsendum sem við mótmæltum því þegar uppbyggingarsjóðir atvinnulífsins voru einkavæddir. Ekki hefur farið fram hjá neinum að við höfum mótmælt því kröftuglega þegar símstöðvum, pósthúsum og bankaútibúum hefur verið lokað og þrengt hefur verið að velferðarþjónustunni. Við höfum sagt að í stað þess að brjóta þetta kerfi niður, eins og ríkisstjórnin hefur gert með niðurskurði og í nafni einkavæðingar, eigi að byggja upp og efla þessa þjónustu. En þegar við höfum haldið þessum sjónarmiðum fram, t.d. að bankar ættu í senn að vera lánastofnanir og þjónustufyrirtæki með félagslega ábyrgð gagnvart heimilum og byggðalögum hafa menn í þessum sal ekki vitað hvert þeir ættu að komast, slík afturhaldshugsun væri hér á ferðinni.
Nú er að koma í ljós að það erum við sem erum sjálfum okkur samkvæm og byggjum á yfirvegaðri, málefnalegri afstöðu. En sömu menn og áður höfðu þennan tón uppi gagnvart Vinstri hreyfingunni -- grænu framboði tala nú sjálfir fyrir meiri og glæfralegri ríkisafskiptum en dæmi er um í Íslandssögunni. Hér vísa ég sérstaklega í tvö mál, annars vegar stóriðjuáformin á Austurlandi sem ekki einvörðungu mundu spilla náttúru landsins stórlega heldur einnig efnahag landsmanna, hins vegar 20 þús. millj. kr. ríkisábyrgðina fyrir fyrirtækið deCODE. Sama ríkisstjórnin sem er að selja frá þjóðinni arðbærar eignir ætlast nú til þess að hún gangist í áhættuábyrgð, meira að segja án þess að málin séu skoðuð af óháðum aðila og án þess að farið sé að lögum því til stendur að láta ríkisábyrgðarlögin ekki gilda gagnvart þessari lántöku.
Hverjir eru málavextir? Fyrir austan lofaði Framsfl. stóriðju og hana skyldu menn fá hvað sem það kostaði. ,,Þetta er bullandi arðsamt,`` sagði Valgerður Sverrisdóttir iðnrh. þegar gengið var til atkvæða um virkjunarheimild henni til handa, og hafði hún þá engan kaupanda að orkunni. Bullandi arðsamt var það samt. Í framhaldinu er fyrrv. varaformaður Framsfl., og núverandi seðlabankastjóri sem þó er aukaatriði í málinu --- aðalatriðið er að hann haldi fast við línu Framsfl. --- sendur til viðræðu við álrisana, að biðja þá að koma og hjálpa Framsfl. Er traustvekjandi að leggja málið svona pólitískt upp? Og er það traustvekjandi þegar iðnrh. segir í sjónvarpsþætti að hún nenni varla að ræða efnahagslegar forsendur málsins? Er þetta fólk líklegt til að gæta hagsmuna lands og þjóðar? Þetta gerðist fyrir austan.
Ekki veit ég hins vegar hvar þeir hittust, forsrh. og forstjóri deCODE, til að ræða 20 milljarða ríkisábyrgðina en hitt vitum við að inn í þingið kom Davíð Oddsson forsrh. með samning, sagði Sjálfstfl. að hann yrði að hlíta sínum vilja eins og alltaf, sama orð var látið ganga yfir í þingflokksherbergi Framsóknar, málið afgreitt á þremur tímum og síðan var reynt að setja þjóðarandstöðuna í siðferðilega spennitreyju með því að spyrja hvort menn ætluðu virkilega að standa í vegi fyrir atvinnuuppbyggingu.
Nú var allt gleymt, hve hallærislegt það er að tala um stuðning við uppbyggingu atvinnulífs og gömlu kenningarnar hans Adams Smiths um frelsi fjármagnsins og hina ósýnilegu hönd markaðarins sem öllu muni stýra í gæfuríka átt ef markaðurinn aðeins fengi að vera óáreittur --- allt þetta var gleymt og hin ósýnilega hönd varð öllum sýnileg, hún var föst við forsrh., Davíð Oddsson, og sú hönd hélt um svipu, flokkssvipu Sjálfstfl., og virðist duga vel.
Það hefur verið átakanlegt að fylgjast með talsmönnum ýmissa hægri sinnaðra samtaka, hvernig þeir gerast órólegir og tvístígandi. ,,Jú, að sjálfsögðu þarf þetta að fara í skoðun og um nálarauga.`` Ég held það hafi verið talsmaður Verslunarráðsins sem þannig komst að orði. Nálarauga Verslunarráðsins reyndist hins vegar á stærð við opið á Hvalfjarðargöngunum. Þar fer allt í gegn.
Herra forseti. Tími minn er senn á þrotum en ég veit að ég þarf ekki að segja margt. Þeir sem á hlýða munu botna hugsunina. Kárahnjúkar. Öryrkjadómur. Landssíminn hf. Einkavæðingarnefnd. Húsnæðismálin. Ég gæti haldið áfram lengi. En það þarf ekki að segja meira til þess að upp komi í hugann hjá okkur öllum hve brýnt það er að losna við þessa ríkisstjórn sem gætir hagsmuna eins illa og raun ber vitni.
Herra forseti. Við búum í góðu landi. Hér eru mikil verðmæti til að vinna úr. Sköpunarkrafturinn er fyrir hendi og tækifærin, og ytri skilyrði eru góð. En þegar við beinum sjónum inn á við verður fyrir ríkisstjórn sem fylgir ranglátri stefnu og óskynsamlegri. Hún er aðgerðarlaus þar sem aðgerða er þörf en einhendir sér af fullum þunga í þau mál sem til óheilla horfa. Það styttist vonandi í að þið, kjósendur, segið þeim sem verma hér ráðherrastóla að nú sé kominn tími til að taka pokann sinn.
Herra forseti. Það er mikið tilhlökkunarefni. --- Gleðilegt sumar.