Guðjón A. Kristjánsson:
Herra forseti. Ég vil lýsa mikilli ánægju með það mál sem við erum hér með, frv. til barnaverndarlaga. Það sýnir að með mikilli og góðri vinnu, þó að það taki yfir tvö þing, má ná saman með stjórn og stjórnarandstöðu varðandi lagasetningar þegar vel er unnið og mér sýnist að þær brtt. sem nefndin gerir við frv. og taldar eru upp í 16 liðum séu allar til bóta. Ég vildi bara koma hér upp, þar sem við í Frjálslynda flokknum eigum ekki aðild að félmn., og lýsa yfir eindregnum stuðningi við málið. Ég tel að hér hafi verið til fyrirmyndar unnið og væri rétt að vinna oftar með þeim hætti sem hér hefur verið gert, einkanlega þegar verið er að fjalla um löggjöf sem snertir mjög einstaklinga og réttindi þeirra. Þessi löggjöf er dæmi þar um. Ég tel að útlendingalöggjöfin sem við erum með til umfjöllunar sé einnig dæmi um löggjöf sem við ættum að taka sérstaklega til skoðunar og ná víðtækri sátt um, það sé ekki rétt að keyra slíka lagabálka í gegn í miklu ósætti heldur að fresta frekar málinu, reyna að vinna það betur og ná jafnvíðtækri sátt og hér hefur tekist. Ég lýsi fullum stuðningi okkar í Frjálslynda flokknum við þetta mál.