Sverrir Hermannsson (um atkvæðagreiðslu):
Herra forseti. Óðinn má vita með hvaða ráði þeir menn eru sem fyrir þessum málatilbúnaði standa, en með réttu ráði virðast þeir ekki vera. Ég tók sérstaklega eftir orðum hæstv. fjmrh., og fagna þeim, um að hann muni ekki beita þeirri heimild sem hér stendur til að veita honum nema eftir ítarlega athugun og vandlega yfirvegun. Ég geri ráð fyrir því að hann kalli eftir sérstöku mati t.d. á áhættu þessa máls. Ég sé ástæðu til að taka það fram að það verður auðvitað ekkert lagt upp úr því mati ef það verður unnið af hæstv. forsrh. eða spilafélögum hans.