Fátækt á Íslandi

Þriðjudaginn 30. apríl 2002, kl. 10:09:53 (8481)

2002-04-30 10:09:53# 127. lþ. 133.91 fundur 561#B fátækt á Íslandi# (aths. um störf þingsins), GAK
[prenta uppsett í dálka] 133. fundur, 127. lþ.

[10:09]

Guðjón A. Kristjánsson:

Herra forseti. Fátækt í íslensku þjóðfélagi er staðreynd og virðist ekki fara minnkandi, því miður. Fátæku fólki er vísað á hjálparstofnanir og á ekki í önnur hús að venda. Þeirri vaxandi fátækt sem virðist vera að búa um sig í okkar stéttskipta þjóðfélagi verður að taka á með sameiginlegu átaki ríkisstjórnar og sveitarstjórna. Félagsleg samhjálp verður að ná til þess fólks sem nú er sett til hliðar að þessu leyti.