Niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar

Þriðjudaginn 30. apríl 2002, kl. 11:12:39 (8508)

2002-04-30 11:12:39# 127. lþ. 133.7 fundur 640. mál: #A niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar# (heildarlög) frv. 78/2002, ÁSJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 133. fundur, 127. lþ.

[11:12]

Árni Steinar Jóhannsson:

Virðulegi forseti. Við hjá Vinstri hreyfingunni -- grænu framboði munum greiða atkvæði með þessu frv. Ég vil sérstaklega nefna að frv. gerir ráð fyrir að upplýsingagjöf verði stórefld og fræðsla um orkunotkun í landinu almennt séð. Það held ég að sé til mikilla bóta. Við þurfum á því að halda og fyrir dreifbýlið er þetta mikið hagsmunamál. Þess vegna munum greiða fyrir framgangi málsins.