Jóhann Ársælsson:
Hæstv. forseti. Þó að það hafi verið upplýst í umræðunni áðan að Sovétríkin hafi fallið vegna niðurgreiðslna á húshitunarkostnaði verð ég að lýsa yfir óánægju minni með það að menn skyldu ekki taka tillit til athugasemda sem fram komu hjá fleiri en einum þingmanni um að möguleikar til að styðja nýjar hitaveitur ættu að vera meiri en gert er ráð fyrir í þessari grein. Lagt var til að til þess gæfust allt að tíu ár. Hér er gert ráð fyrir fimm árum. Ég lýsi yfir óánægju minni með þetta. Ég tel að þetta eigi að endurskoða. Þess vegna sit ég hjá við afgreiðslu á 12. gr. frv.