Steinullarverksmiðja

Þriðjudaginn 30. apríl 2002, kl. 16:02:47 (8584)

2002-04-30 16:02:47# 127. lþ. 134.1 fundur 663. mál: #A steinullarverksmiðja# (sala á eignarhlut ríkisins) frv. 57/2002, ÁSJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 134. fundur, 127. lþ.

[16:02]

Árni Steinar Jóhannsson:

Virðulegi forseti. Í ljósi þess að áformuð sala á Steinullarverksmiðjunni á Sauðárkróki er fyrst og fremst til komin vegna fjárhagsvanda Sveitarfélagsins Skagafjarðar tel ég óráðlegt að ríkið selji eignarhluta sinn á þessum tímapunkti og hef fært rök fyrir því. Þvert á móti hefði ríkið átt að koma að málum varðandi Steinullarverksmiðjuna og leysa til sín bréf sveitarfélagsins. Af þessum ástæðum segi ég nei.