Steinullarverksmiðja

Þriðjudaginn 30. apríl 2002, kl. 16:03:31 (8585)

2002-04-30 16:03:31# 127. lþ. 134.1 fundur 663. mál: #A steinullarverksmiðja# (sala á eignarhlut ríkisins) frv. 57/2002, iðnrh. (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 134. fundur, 127. lþ.

[16:03]

Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):

Hæstv. forseti. Með samþykkt þessa frv. er verið að samþykkja heimild til þess að selja 30% hlut í verksmiðju á árinu 2002. Ég tek þetta sérstaklega fram vegna þess að miðað við umræðuna eins og hún hefur verið síðustu klukkutíma sem hún hefur farið fram höfum við verið eins og aftur í fornöld. Það eru vinstri grænir sem hafa staðið fyrir þeirri umræðu. Ég segi já. (Forseti hringir.)