Vegáætlun fyrir árin 2000--2004

Fimmtudaginn 02. maí 2002, kl. 18:10:30 (8677)

2002-05-02 18:10:30# 127. lþ. 135.11 fundur 680. mál: #A vegáætlun fyrir árin 2000--2004# þál. 28/127, GÁS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 135. fundur, 127. lþ.

[18:10]

Guðmundur Árni Stefánsson:

Herra forseti. Það er óhjákvæmilegt að vekja á því athygli að hér er niðurfærsluleið á fullri ferð. Hér er verið að færa niður tölur í gildandi vegáætlun um 2 milljarða kr. sem er afleiðing niðurskurðar þessarar ríkisstjórnar á framlögum til vegamála við afgreiðslu fjárlaga í desember sl. Þetta er hugur ríkisstjórnarinnar til vegamálanna í landinu hvað sem öllum fögrum fyrirheitum líður.