Hollustuhættir og mengunarvarnir

Fimmtudaginn 02. maí 2002, kl. 18:13:52 (8682)

2002-05-02 18:13:52# 127. lþ. 135.12 fundur 638. mál: #A hollustuhættir og mengunarvarnir# (starfsleyfi, hollustuvernd o.fl.) frv. 98/2002, Frsm. MS (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 135. fundur, 127. lþ.

[18:13]

Frsm. umhvn. (Magnús Stefánsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. umhvn. um frv. til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, með síðari breytingum.

Við umfjöllun nefndarinnar um málið komu nokkrir gestir og auk þess fékk nefndin skriflegar umsagnir hjá nokkrum aðilum.

Megintilgangur frv. er að kveða skýrar á um starfsleyfisskyldu og aðrar þær kvaðir sem þeirri skyldu fylgja í lögunum. Þannig er nú kveðið skýrt á um að allur atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun sem og stofnanir, fyrirtæki og önnur starfsemi sem talin er upp í fylgiskjali III með lögunum skuli hafa gilt starfsleyfi. Jafnframt er tekið fram að óheimilt sé að hefja starfsleyfisskylda starfsemi hafi starfsleyfi fyrir hana ekki verið gefið út. Þá er lagt til að skilgreining hugtaksins hollustuvernd og heimild til að setja almennar reglur um framkvæmd hollustuverndar verði rýmkaðar nokkuð frá því sem nú er. Ástæða þessa er m.a. sú að á vissum sviðum eru atriði er varða öryggi almennings og slysavarnir svo tengd heilbrigðiseftirliti að rétt þykir að víkka skilgreiningu hugtaksins hollustuvernd þannig að það nái einnig til þessara þátta.

Nefndin ræddi sérstaklega starfsemi olíubirgðastöðva. Á grundvelli 24. gr. laga nr. 32/1986, um varnir gegn mengun sjávar, lúta olíubirgðastöðvar eftirliti Hollustuverndar ríkisins, samanber einnig reglugerð nr. 35/1994, um varnir gegn olíumengun frá starfsemi í landi. Samkvæmt 4. gr. frv. (5. gr. a laganna) er gert ráð fyrir því að allur atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun verði starfsleyfisskyldur. Verði þessi breyting lögfest verður starfsemi olíubirgðastöðva starfsleyfisskyld og eftirlit sem verið hefur hjá Hollustuvernd ríkisins mun flytjast til heilbrigðisnefnda sveitarfélaga. Það eftirlit sem hér um ræðir felst í sérhæfðum skoðunum sem óeðlilegt væri að byggja upp í hverju heilbrigðiseftirlitssvæði fyrir sig. Þar sem það er ekki markmið frv. að breyta því fyrirkomulagi sem hér um ræðir er nauðsynlegt að bæta olíubirgðastöðvum inn í fylgiskjal I með lögunum sem geymir lista yfir þann atvinnurekstur sem Hollustuvernd ríkisins veitir starfsleyfi fyrir.

Fram kom í máli gesta að við setningu fyrrnefndrar reglugerðar um varnir gegn olíumengun frá starfsemi í landi var sú kvöð lögð á eigendur olíubirgðastöðva að mengunarvörnum skyldi komið í fullkomið horf fyrir 31. desember 2005 og er 75% þeirrar áætlunar nú lokið. Til einföldunar við starfsleyfisgerð þar sem allar olíubirgðastöðvar munu þá uppfylla sömu skilyrði og til að koma í veg fyrir óþarfaóþægindi er nauðsynlegt að ekki verði gerð krafa um að olíubirgðastöðvar hafi starfsleyfi fyrr en að loknu því tímabili. Því er nauðsynlegt að bætt verði inn í lögin ákvæði til bráðabirgða þar sem kveðið er á um að aðilar sem féllu ekki áður undir starfsleyfisskyldu skuli afla sér starfsleyfis fyrir 31. desember 2005.

Nefndin mælir með samþykkt frv. með breytingum sem gerð er grein fyrir í sérstöku þingskjali.

Undir þetta nál. skrifa allri fulltrúar í umhvn., hv. þm. Magnús Stefánsson, Kristján Pálsson, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Katrín Fjeldsted, Jóhann Ársælsson, Gunnar Birgisson, Kolbrún Halldórsdóttir, Ásta Möller og Ísólfur Gylfi Pálmason.