Umhverfisstofnun

Fimmtudaginn 02. maí 2002, kl. 18:57:49 (8685)

2002-05-02 18:57:49# 127. lþ. 135.13 fundur 711. mál: #A Umhverfisstofnun# frv. 90/2002, KPál (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 135. fundur, 127. lþ.

[18:57]

Kristján Pálsson (andsvar):

Herra forseti. Aðeins örstutt. Ég ætla bara að fá nánari skýringu á því frá hv. þm. hvað hún meinar með því að starfssvið heilbrigðisfulltrúa muni breytast eitthvað með lögum um Umhverfisstofnun. Ég veit ekki til þess að starfssvið heilbrigðisfulltrúa breytist neitt með þessum lögum. Og vegna þess að hv. þm. hafði sérstaklega orð á því að þeir hefðu áhyggjur af stöðu sinni, þá vildi ég að fá að vita hvað það er nákvæmlega sem hv. þm. er að meina.