Umhverfisráðherra (Siv Friðleifsdóttir) (andsvar):
Virðulegur forseti. Ég deili ekki þessum áhyggjum með hv. þm. Jóhanni Ársælssyni. Eins og ég skil álit 2. minni hluta, sem hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir og hv. þm. Jóhann Ársælsson skrifa undir, telur hann fagleg samlegðaráhrif af sameiningu þessara stofnana geta verið jákvæð til lengri tíma. Þau eru jákvæð gagnvart málinu en telja að undirbúningnum sé ábótavant. Þar skilja leiðir. Ég tel að þetta mál sé mjög jákvætt og geti haft mjög jákvæð samlegðaráhrif eins og 2. minni hluti en ég tel að við höfum undirbúið málið eðlilega og vænti þess að menn samþykki það á hinu háa Alþingi.
Ég býst líka við því að þegar fram í sækir eftir einhver ár líti menn til baka og sameinist jafnvel um þá skoðun að hér hafi menn samþykkt hagsmunamál, framfaramál og gott mál.