Samráð stjórnvalda við frjáls félagasamtök

Fimmtudaginn 02. maí 2002, kl. 22:34:03 (8722)

2002-05-02 22:34:03# 127. lþ. 135.40 fundur 38. mál: #A samráð stjórnvalda við frjáls félagasamtök# þál. 38/127, Frsm. MS (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 135. fundur, 127. lþ.

[22:34]

Frsm. umhvn. (Magnús Stefánsson):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um till. til þál. um samráð stjórnvalda við frjáls félagasamtök frá umhvn.

Nefndin hefur fjallað um tillöguna sem var einnig flutt á 125. og 126. löggjafarþingi. Fyrir liggja ýmsar umsagnir um málið.

Með þingsályktuninni er lagt til að Alþingi álykti að fela ríkisstjórninni að skipa nefnd er geri úttekt á stöðu frjálsra félagasamtaka á Íslandi og hvernig samskiptum stjórnvalda og sveitarstjórna við þau er háttað. Jafnframt er lagt til að nefndin skili tillögum til ríkisstjórnarinnar um hvernig samráði stjórnvalda við frjáls félagasamtök á sviði umhverfismála verði hagað með vísan til skuldbindinga Íslands samkvæmt svokölluðum Árósasamningi.

Nefndin telur eðlilegra að úttekt þessi takmarkist við frjáls félagasamtök á sviði um hverfis- og náttúruverndarmála og leggur því til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:

,,Tillögugrein orðist svo:

Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa nefnd er geri úttekt á stöðu frjálsra félagasamtaka á sviði umhverfis- og náttúruverndarmála á Íslandi. Jafnframt skili nefndin tillögum til ríkisstjórnarinnar um það hvernig samskiptum stjórnvalda við slík samtök verði best háttað með vísan til skuldbindinga Íslands samkvæmt alþjóðasamningi sem undirritaður var í Árósum 23.--25. júní 1998.``

Undir nál. þetta rita auk mín hv. þm. Kristján Pálsson, Katrín Fjeldsted, Kolbrún Halldórsdóttir, Ísólfur Gylfi Pálmason og Jóhann Ársælsson.

Hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir, Gunnar Birgisson og Ásta Möller voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.