Heilsuvernd í framhaldsskólum

Fimmtudaginn 02. maí 2002, kl. 23:52:03 (8741)

2002-05-02 23:52:03# 127. lþ. 135.34 fundur 37. mál: #A heilsuvernd í framhaldsskólum# þál., Frsm. JBjart (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 135. fundur, 127. lþ.

[23:52]

Frsm. heilbr.- og trn. (Jónína Bjartmarz):

Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti hv. heilbr.- og trn. um till. til þál. um heilsuvernd í framhaldsskólum.

Nefndin fjallaði um þetta mál og henni bárust nokkuð margar og jákvæðar umsagnir um það.

Nefndin tekur undir efnisatriði tillögugreinarinnar sem og þau sjónarmið sem fram koma í greinargerð með henni. Nefndin telur eðlilegt að efni tillögunnar verði skoðað samhliða tillögu um unglingamóttöku og getnaðarvarnir, 317. mál, tillögu um mótun heildarstefnu um uppbyggingu og rekstur meðferðarstofnana, 233. mál, og tillögu um átraskanir, 337. mál. Heilbr.- og trn. telur að þeirri stefnumótun sem gerð er tillaga um að ráðist verði í megi finna stað í starfi á vegum heilbrrh. um þróun og skipulag verkefna heilsugæslunnar, og leggur því til að tillögunni verði vísað til ríkisstjórnarinnar.

Auk frsm. rita undir þetta nál. hv. þm. Ásta Möller, Katrín Fjeldsted, Ásta R. Jóhannesdóttir, Margrét Frímannsdóttir og Þuríður Backman en aðrir hv. þm. heilbr.- og trn. voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.