Ábyrgð skuldabréfa vegna nýrrar starfsemi Íslenskrar erfðagreiningar

Föstudaginn 03. maí 2002, kl. 14:19:22 (8800)

2002-05-03 14:19:22# 127. lþ. 137.2 fundur 714. mál: #A ábyrgð skuldabréfa vegna nýrrar starfsemi Íslenskrar erfðagreiningar# frv. 87/2002, GÁS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 137. fundur, 127. lþ.

[14:19]

Guðmundur Árni Stefánsson:

Herra forseti. Þetta mál er ótrúlegt. Það veit enginn áhættuna. Það veit enginn ávinninginn. Það veit enginn hvort málið standist jafnræðisákvæði stjórnarskrár. Það veit enginn hvort málið standist samninginn um EES. Það fær enginn að vita um raunstöðu þess fyrirtækis sem ríkisábyrgðarinnar á að njóta. Það veit enginn hvort eða hvenær fjmrh. ætlar að nota þessa heimild Alþingis.

Við skulum vona hið besta en vera viðbúin hinu versta. Ég hlýt að segja nei.