Umhverfisstofnun

Föstudaginn 03. maí 2002, kl. 14:33:30 (8810)

2002-05-03 14:33:30# 127. lþ. 137.4 fundur 711. mál: #A Umhverfisstofnun# frv. 90/2002, umhvrh. (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 137. fundur, 127. lþ.

[14:33]

Umhverfisráðherra (Siv Friðleifsdóttir):

Virðulegi forseti. Með nýrri Umhverfisstofnun er verið að sameina nokkrar stofnanir á sviði umhverfismála sem sinna stjórnsýslu. Með því næst fram einfaldari og skilvirkari stjórnsýsla. Bæði ég, forstöðumenn undirstofnananna sem hér er verið að sameina og fjöldi starfsmanna lítum svo á að hér sé um mikið tækifæri að ræða til að efla umhverfismál í landinu. Ég segi því já.