Jóhann Ársælsson:
Hæstv. forseti. Hér eru á ferðinni brtt. sem litlu máli skipta í því stóra máli sem hér er verið að fjalla um. Ég tel ástæðu til að Samfylkingin sitji hjá við þær. En það hefur komið fram áður að við ætlum að greiða atkvæði gegn þessu máli í heild og það munum við gera í lok atkvæðagreiðslunnar.