2001-10-03 13:33:10# 127. lþ. 3.1 fundur 35#B hryðjuverkin í Bandaríkjunum og viðbrögð við þeim, skýrsla utanríkisráðherra# (munnl. skýrsla), Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 3. fundur, 127. lþ.

[13:33]

Forseti (Halldór Blöndal):

Um fyrirkomulag umræðunnar er samkomulag milli þingflokka. Umræðan skiptist í þrjár umferðir og mun standa í um það bil tvær klukkustundir. Í fyrstu umferð hefur ráðherra fimmtán mínútur og talsmenn flokkanna tíu. Í annarri umferð hafa þingmenn og ráðherrar fjórar mínútur hver til umráða og í þriðju og síðustu umferð hafa talsmenn flokkanna tvær mínútur hver og ráðherra fimm mínútur.