Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde) (andsvar):
Herra forseti. Ég tel ekki minnsta vafa á því að fyrirhugaðar skattbreytingar, sem munu birtast þingmönnum væntanlega í dag í formi frv. sem hefur verið í undirbúningi, muni gagnast atvinnulífi alls staðar í landinu. Menn verða að líta á þetta sem eina heild. Tekjuskattur fyrirtækja lækkar. Og eignarskattur fyrirtækja, sem er mjög íþyngjandi fyrir mörg fyrirtæki, lækkar. Hvort tveggja er mikil hagsbót fyrir öll þau fyrirtæki sem greiða þessa skatta.
Tryggingagjaldið er hins vegar hækkað lítillega á móti samkvæmt þessum hugmyndum til þess að geta fjármagnað stærri skref heldur en ella hefði verið, bæði fyrir fyrirtækin og einstaklingana. Nettóútkoman úr þessu er veruleg hagsbót fyrir fyrirtækin, veruleg skattalækkun í heildina. Hins vegar er auðvitað ekki hægt að fullyrða það nákvæmlega hvernig þetta kemur út fyrir einstök fyrirtæki hvort sem þau eru staðsett hér í Reykjavík eða úti á landi. Það fer eftir aðstæðum í viðkomandi fyrirtæki.
Hins vegar vil ég benda á að í þessu er líka gert ráð fyrir því að unnt verði að gera fólki sem er með einstaklingsrekstur, rekstur í eigin nafni, kleift að breyta formi fyrirtækja sinna úr einstaklingsrekstri yfir í einkahlutafélag án þess að til komi skattur á söluhagnað sem hefur staðið mörgum slíkum aðilum verulega fyrir þrifum. Þar er um að ræða mjög marga aðila sem stunda rekstur úti á landi, menn sem eru í smáútgerð, menn sem eru með alls kyns atvinnustarfsemi af þessu tagi, hafa kannski átt í erfiðleikum með að koma fyrirtækjum sínum á milli kynslóða eða draga sig út úr rekstri. Þetta þekkja menn víða um land. Þetta er mjög mikilvægt atriði.
En í heildina er markmiðið með þessum breytingum að treysta undirstöður atvinnulífsins alls staðar, ekki bara hér á höfuðborgarsvæðinu heldur alls staðar. Halda menn að það skipti ekki máli fyrir fyrirtækin úti á landi að tekjuskatturinn og eignarskatturinn skuli lækka svona? Aðalmarkmiðið er auðvitað það að þessi fyrirtæki öll fái starfsgrundvöll þannig að þau geti byggt sig upp og skilað hagnaði. Skilað eigendum sínum hagnaði, skilað ríkissjóði sköttum, skilað starfsfólki sínu betri launum o.s.frv. Þetta er auðvitað markmiðið. Þetta er það sem ég held að við ættum að geta sameinast um hér í þinginu sem markmið sem allir eiga að geta tekið undir.