Kristján Pálsson (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. talar um samkomulag. Frv. er komið fram, það gefur augaleið um hvað er samkomulag.
Ég held að óþarfi sé að teygja lopann meira í þessu. Ég bað um skýringar á því hvað lægi á bak við þessar hækkanir og ég hef látið þær koma fram hér. Ég er alveg viss um að stúdentar og háskólaborgarar vilja að sjálfsögðu ekki borga meira en þeir þurfa. Og ef þeir sleppa við að borga 35 þús. kr. og greiða í staðinn 25 þús. kr. fyrir innritunina, þá vilja þeir það. Það er enginn sem biður um að þurfa að borga meira. En ég er alveg handviss um að stúdentar munu skilja það. Auðvitað mótmæla þeir því að þurfa að borga meira, en ég held þeir skilji að þetta er ekki ósanngjörn greiðsla og í raun í takt við þær hækkanir sem hafa orðið á síðustu árum.