Jóhann Ársælsson (andsvar):
Hæstv. forseti. Mér þóttu svör hæstv. ráðherra ekki nægilega skýr. Það liggur fyrir að margir af fjármálaspekingunum í landinu spá því að íslenska krónan muni hverfa út úr atvinnulífinu á þessum áratug. Það eru ekki lítil tíðindi og mér finnst að þegar ríkisstjórnin segir: ,,Gott og vel, fyrirtækin í landinu mega gera upp í erlendri mynt,`` þá sé það til að flýta fyrir þeirri þróun. Ég spyr því: Er ríkisstjórnin þá að leggja blessun sína yfir þá framtíð krónunnar? Ég hlýt líka að ætla að menn hafi farið yfir það hvernig sá ferill verður, ef þannig verður staðið að málum að fyrirtækin í landinu færa sig smám saman frá íslensku krónunni yfir í erlendar myntir.
Ég spurði líka að því og langaði til að fá svar hæstv. ráðherra við því hvaða ástæðu hann telur fyrir því að íslenska krónan er að falla núna. Hún stendur lægra heldur en hún hefur gert í manna minnum en heldur samt áfram að falla. Mér finnst hugsanlegt að það sé samhengi milli þess að menn séu á flótta frá krónunni og því að hún er að falla. Ég vildi gjarnan heyra betri skýringar en hæstv. ráðherra gaf hér áðan. Hann sagði nánast: Þetta hefur engin áhrif, þetta skiptir engu máli. Þetta er bara bókhald.
En traustið á íslensku krónunni er ekki bara bókhald. Það er nákvæmlega bara traust. Ef menn missa traustið á íslensku krónunni þá fellur hún. Ég spyr: Hvers vegna fellur hún núna? Er ekki bara ágætt að hæstv. ráðerra gefi okkur skýringuna á því? Af hverju heldur hún áfram að falla?