Kristján Pálsson (andsvar):
Herra forseti. Það kemur mjög á óvart hve þetta frv. er illa hugsað, að það skuli ekki vera neinar hugmyndir um það hjá flutningsmönnum hvað þetta geti gefið af sér. Þeir virðast engar hugmyndir hafa um hvað veiðiheimildir, sem eru þekkt stærð miðað við það sem er úthlutað í dag, geti gefið mikið af sér, hvert hugsanlegt leiguverð verður eða uppboðsverð. Það kemur mjög á óvart að þeir hafi ekki velt þessu fyrir sér. Er þetta þá bara eitthvert málamyndafrumvarp? Eru menn bara að slá því fram til að gera eitthvað?
Mér finnst dálítið merkilegt að heyra að menn efist ekkert um að fyrirtækin sem hafa hingað til staðið sig vel, muni halda því áfram. Auðvitað eru þarna góðir menn sem standa vel að stjórn fyrirtækja sinna en þeir hafa treyst því að við búum við kerfi sem standi um langan tíma. Tíu ár eru ekki svo langur tími.
Hæstiréttur sagði að ef breytingar ættu sér stað á mjög löngum tíma þá gætu menn komist hjá skaðabótakröfu. En fjárfestingar, t.d. í einu skipi, eru 20--30 ára fjárfestingar. Ég get því ekki séð að flutningsmenn hafi heldur skoðað þá hlið málsins, þ.e. hve langur tími sé eðlilegur miðað við dóma Hæstaréttar.
Ég verð því að draga þá ályktun, herra forseti, því miður, að flutningsmenn hafi ekki lagt sig nægjanlega fram um að skoða afleiðingar þessa frv., ef af lögum yrði, og hvað mundi koma í staðinn. (SvanJ: Það er þrælskoðað.) Ég vona svo sannarlega að það komi þá betur í ljós seinna í umræðunni.
Ég er einn af þeim, herra forseti, sem hafa mikinn á huga á að stjórn okkar á veiðum verði almennt með þeim hætti að við getum verið ánægð með niðurstöðuna. Það þarf kannski að gera betur til þess.