Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde) (andsvar):
Herra forseti. Hér er hreyft við athyglisverðu atriði. Hins vegar er ekki hægt að fullyrða um þetta frekar en margt annað. Þetta er reyndar hægt að gera í dag. Menn geta breytt rekstri sínum úr einstaklingsbundnu formi yfir í einkahlutafélög og þá gerist það sama að því er varðar sveitarfélögin. Þá dettur niður útsvarið hjá sveitarfélögunum þannig að við vitum í raun ekki hversu margir muni hagnýta sér þetta eða með hvaða hætti.
En miðað við tölurnar sem þingmaðurinn nefndi þá lækka náttúrlega tekjur ríkissjóðs líka úr 26% skatti ofan í 18% skatt. Þetta er hins vegar hlutur sem þarf að fara betur í og m.a. ræða þetta við Samband ísl. sveitarfélaga. Þetta er nokkuð sem við höfðum áttað okkur á en það er ekki með nokkru móti hægt að kasta á þetta ákveðinni tölu. Við vitum ekki hve mikil breytingin er af því að við getum gert þetta í dag þó að líklegt sé að fleiri muni taka upp slíkt rekstrarform samkvæmt nýja kerfinu en gera það í dag.