Einar Már Sigurðarson (andsvar):
Herra forseti. Í framhaldi af umræðum um fjárlagafrv. og sérstaklega þeirri umræðu sem átt hefur sér stað um forsendur frv. er nauðsynlegt að spyrja hæstv. fjmrh. einnar lítillar spurningar.
Við höfum bent á það að menn hafi verið að leika sér með tölur varðandi þær skattbreytingar sem hér eru í forsendum fjárlaga. Meðal annars fengum við þær upplýsingar á kynningarfundi að um 600 millj. væri að ræða sem kæmu til framkvæmda á árinu 2002. Við fengum síðan upplýsingar um það á fundi í fjárln. að hér væri eingöngu um að ræða 15% hækkun frítekjumarka á svokölluðum hátekjuskatti.
Nú segir, herra forseti, í fylgiskjali tvö með því frv. sem hér er til umræðu:
,,Í tekjuáætlun frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2002 hefur þegar verið gert ráð fyrir þeim breytingum á skattalögum sem hefðu áhrif á það ár.``
Herra forseti. Hér er eitthvað sem ekki passar. Í ljósi þeirra orða hæstv. fjmrh. að þetta mál hafi fengið mjög vandaða umfjöllun bæði í ríkisstjórn og ráðuneyti þá hlýtur að vera eðlilegt að spyrja hæstv. ráðherra á hvorum staðnum er ekki rétt farið með. Ég sé ekki betur en það skeiki a.m.k. þeim 150 millj. sem gert er ráð fyrir að tapist við að skattleggja ekki lengur húsaleigubætur.