Össur Skarphéðinsson (andsvar):
Herra forseti. Ég er ekki á móti henni. Þetta eru hins vegar, eins og ég sagði áðan, ákveðnar siðferðilegar spurningar sem við þurfum að svara. Hvernig eigum við að nota það svigrúm sem við höfum? Ég segi það fyrir sjálfan mig að ég er ekki á móti þessari skattbreytingu en ég tel að réttlátara væri ef svigrúmið sem við höfum og er nýtt til þess færi t.d. í það að hjálpa þeim allra lakast settu.