Ólafur Örn Haraldsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Mér finnst það liggja beint við að ríki og sveitarfélög skoði áhrif þessara skattalaga ef þau verða samþykkt hér. Það verður að meta þau ásamt ýmsu öðru sem er í stöðugri skoðun, hvernig upp skuli gert ef á einhvern hallar. Ég tel að það sé eitt þeirra verkefna sem við höfum hér á þinginu. Við eigum að vinna að því og svo sannarlega munum við fagna því að sveitarfélögin komi fram með rök sín, hvort sem þau styðja málflutning hv. þm. eða ekki.
Varðandi bændur og tryggingagjaldið þá vil ég minna á að ég tel eðlilegt að bændur, eins og aðrir í landinu sem hafa með rekstur að gera, greiði sambærileg gjöld og aðrir. Allur rekstur í landinu á að sjálfsögðu að sitja við sama borð. Ef okkur þykir að við þurfum að styrkja bændur, búsetu og byggðarlög, þá eigum við að gera það með öðrum móti, eins og svo sannarlega er gert með margvíslegum hætti og ómögulegt að rekja hér í örstuttu svari.
Við eigum að sjálfsögðu að koma mjög myndarlega til liðs við bændur. En við eigum ekki að gera það með því að að rugla skattkerfi sem þarf að hvíla á jöfnuði og öryggi fyrir alla sem stunda rekstur.