Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):
Hæstv. forseti. Lög nr. 31/1999, um alþjóðleg viðskiptafélög, voru samþykkt á Alþingi 19. mars 1999. Voru fyrstu starfsleyfi alþjóðlegra viðskiptafélaga gefin út í ágúst það ár. Alls hafa tíu félög fengið starfsleyfi sem alþjóðleg viðskiptafélög auk þess sem tvær umsóknir um starfsleyfi hafa nýverið hlotið jákvæða afgreiðslu af hálfu starfsleyfisnefndar. Má því eiga von á að tvö starfsleyfi til viðbótar verði veitt á næstunni. Enn eru að berast umsóknir um starfsleyfi jafnframt því sem ráðuneytið og starfsleyfisnefnd berast reglulega fyrirspurnir frá aðilum sem íhuga þetta félagsform.
Tiltölulega skammur tími er liðinn frá gildistöku laga nr. 31/1999 og helmingur stofnaðra félaga á minna en heilt starfsár að baki. Starfsemi flestra félaganna er því í mótun og er almennt ekki búin að taka á sig endanlega mynd. Því er of snemmt að segja til um það á þessari stundu hver ávinningur ríkissjóðs verður af þessum félögum í formi aukinna skatttekna.
Ég vil til viðbótar segja að það sem kom fram hjá hv. þm. er rétt að þessi lög hafa verið eitthvað til skoðunar hjá OECD og gildir það um margar aðrar þjóðir að lagasetning af þeirra hálfu hefur verið til skoðunar vegna þess að þar er áhugi fyrir hendi á að samræma lög á þessu sviði og eins má segja að ESA hafi haft einhverja svipaða tilburði uppi.
Þetta er það sem ég vildi að kæmi fram sem svar við fyrirspurn hv. þm.